Að kaupa notaðar vörur - Ruth Einarsdóttir
Ruth Einarsdóttir starfar sem rekstrarstjóri nytjamarkaðs SORPU Góða hirðinn. En Góði hirðirinn skilar öllum hagnaði til góðgerðarmála. Ruth hefur lengst af starfað í verslun og í fatageiranum þangað til hún tók við Góða hirðinum fyrir þremur árum síðan sem aðallega selur húsmuni og húsgögn. 
Í þessu viðtali ræðum m.a:
- Hvernig umhverfið fyrir sölu á notuðum vörum hefur breyst á nokkrum árum
 - Mikil aukning í endurnýtingu á húsbúnaði og fötum
 - Fatnað og umhverfisáhrif á tísku þar sem föt hafa enst stutt
 - Hvort það sé betra að kaupa dýran fatnað en ódýran?
 - Markaði með notuð föt og áhrif þeirra á umhverfið
 - Hvað verður um þau þúsundir tonna af fötum sem berast til SORPU
 - Sögu Góða hirðisins hjá SORPU og vaxandi umfang þess
 - Hversu hátt hlutfall alls þess sem berst í nytjagáma er selt aftur
 - Að fyrir innan 100 þúsund krónur er hægt að kaupa nánast allt til heimilisins hjá Góða hirðinum
 
Þetta og margt fleira í þessu áhugaverða viðtali
Umsjón Gunnar Dofri Ólafsson
Framleitt af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu